Fréttasafn
Fréttir frá Vallaskóla
Norsk jól
Nemendur í norsku í Vallaskóla hafa undanfarið unnið þemaverkefni sem ber heitið „Jul i Norge“.
Skreytingadagur
Nú styttist í jólin og komin tími til að færa skólann okkar í jólabúning. Föstudaginn 1. desember er skreytingardagur í Vallaskóla. Nemendur skreyta stofuna sína í samstarfi við kennara og boðið verður upp á heitt súkkulaði og piparkökur. Íþróttir, sund […]
Dagur íslenskrar tungu
Hefð hefur skapast fyrir því að á degi íslenskrar tungu að setja Stóru upplestrarkeppnina með formlegum hætti í Vallaskóla.
Árshátíð unglingastigs
Fimmtudagskvöldið 1. desember verður árshátíð unglingastigs í Vallaskóla (8.-10. bekkur) haldin. Að þessu sinni verður hún í Austurrými skólans og er gengið inn af Engjaveginum. Hátíðin byrjar kl. 18.00 en þá er hátíðarkvöldverður hjá 10. bekk. Um kl. 21.00 bætast […]
Foreldrafræðsla/kakófundur
Í dag, miðvikudaginn 29. nóvember, stendur forvarnarteymi Árborgar, SAMBORG (félag foreldrafélaga í Árborgar) og grunnskólarnir hér í sveitarfélaginu í samstarfi við lögreglu og félagsþjónustu fyrir svokölluðum Kakófundi í Sunnulækjarskóla. Fræðslan hefst kl. 19:30 og er áætlað að dagskránni verði lokið […]
Kakófundur
Miðvikudaginn 29. nóvember, stendur forvarnarteymi Árborgar, SAMBORG (félag foreldrafélaga í Árborgar) og grunnskólarnir hér í sveitarfélaginu í samstarfi við lögreglu og félagsþjónustu fyrir svokölluðum Kakófundi í Sunnulækjarskóla. Fræðslan hefst kl. 19:30 og er áætlað að dagskránni verði lokið um kl. […]
Komdu að kenna!
Laus er til umsóknar 100% staða kennara í leikrænni tjáningu og ensku við Vallaskóla á Selfossi út skólaárið 2017-2018. Umsóknarfrestur er til 4. desember 2017. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Endurskoðun skólastefnu Árborgar, súpufundur
Næsti hugarflugsfundur í stýrihópi um endurskoðun skólastefnu Sv. Árborgar verður haldinn í Sunnulækjarskóla miðvikudaginn 22. nóvember 2017 kl. 17:30-19:30. Þangað eru allir velkomnir og súpuhressing verður í boði fræðslusviðs Árborgar Viltu hafa áhrif á skólastefnu Árborgar ?
Komdu að vinna með okkur á Bifröst!
Forstöðumenn frístundaheimila í Árborg Hjá Vallaskóla og Sunnulækjarskóla á Selfossi eru lausar 100% stöður forstöðumanna frístundaheimilanna Bifrastar við Vallaskóla og Hóla við Sunnulækjarskóla. Á báðum stöðum eru skráðir að jafnaði u.þ.b. 150 nemendur.
Heimsókn frá Eistlandi
Hópur kennara frá Eistlandi kom nýverið í heimsókn til Árborgar og kynnti sér menntamál og skólastarf í sveitarfélaginu. Gestirnir eru frá bænum Võru á sunnanverðu Eistlandi.
Foreldraviðtöl
Í dag mæta nemendur og forráðamenn þeirra í viðtöl hjá umsjónakennurum um líðan og námslega stöðu. Minnum á köku- og vöfflusölu nemenda í 10. bekk, fjáröflunarkaffi vegna útskriftarferð þeirra í vor. Aðeins er tekið við reiðufé.
