Fréttasafn
Fréttir frá Vallaskóla
Vallaskóli á skákmóti
Í tilefni af skákdegi Íslands 26. janúar (fæðingadagur Friðriks Ólafssonar, stórmeistara) var haldið skákmót í Fischersetrinu á Selfossi. Um var að ræða Sveitakeppni grunnskóla á Suðurlandi og sendi Vallaskóli þrjár sveitir til leiks, tvær í yngri flokki og eina í eldri flokk, […]
Bónda- og lopapeysudagur
Föstudaginn 19. janúar gekk þorrinn í garð og bóndadagurinn markaði upphafið að því tímabili ársins. Og lopapeysurnar í allri sinni dýrð dregnar fram í tilefni dagsins, auk þess að snæða þorramat. Nema hvað!
Kynning á klúbba- og hópastarfi félagsmiðstöðvarinnar
Fimmtudagurinn, 18. janúar kl. 18:30-19:15 mun starfsfólk Zelsiuz vera með opna kynningu á klúbba- og hópastarfi félagsmiðstöðvarinnar fyrir foreldra og forráðamenn. Félagsmiðstöðin heldur úti klúbba- og hópastarfi fyrir börn og unglinga í 5. – 10. bekk þar lögð er áhersla á […]
Nýr forstöðumaður Bifrastar frístundaheimilis
Bifröst hefur fengið nýjan forstöðumann til starfa, hana Sunnu Óttósdóttur. Umsjón frístundarheimilisins mun því fara úr umsjón Ástrósar R. Sigurðardóttur sem gengt hefur því starfi undanfarin ár en hún mun nú eingöngu sinna deildarstjórn á yngsta stigi í skólanum.
Starfsdagur
Í dag, þriðjudaginn 2. janúar 2018, er starfsdagur hjá starfsfólki skólans. Opið er á skólavistun fyrir þá sem eru skráðir þar.
Gleðilega hátíð
Eins og flestir vita þá eru litlu jólin ómissandi viðburður í sérhverjum skóla. Árið í ár var auðvitað engin undantekning á því en litlu jólin voru haldin haldin í öllum árgöngum samkvæmt fyrirliggjandi hefð. Jólaleyfið hófst svo 20. desember en […]
Spennandi forstöðumannsstaða við frístundaheimilið Bifröst
Hjá Vallaskóla á Selfossi er laus 100% staða forstöðumanns við frístundaheimilið Bifröst. Á Bifröst eru skráðir að jafnaði um 150 nemendur. Leitað er að metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi með háskólamenntun sem gagnast í starfi.
Áramótaútskrift í 10. bekk 2017-2018
Fjórir nemendur útskrifuðust í dag samkvæmt reglum um áramótaútskrift úr 10. bekk Vallaskóla. Þetta eru þær Anna Linda Sigurðardóttir, Íris Ragnarsdóttir, Sara Lind A. van Kasteren og Matthildur Vigfúsdóttir. Allar eru þær nemendur í 10. SAG.
