Fréttasafn
Fréttir frá Vallaskóla
Limbó, litað, fjör – kapplakubbar, kúluspil, perlað
Þó það sé orðið nokkuð síðan að öskudagurinn var haldinn hátíðlegur, fyrir hálfum mánuði, þá er allt í lagi að rifja aðeins upp stemninguna sem var! Þá var fjórði bekkur með val á milli stofa í tveimur kennslustundum þar sem börnin […]
Vetrarfrí
Við minnum á að föstudaginn 23. febrúar og mánudaginn 26. febrúar er vetrarfrí í grunnskólum Árborgar. Vallaskóli og frístundarheimilið Bifröst verða því lokuð þessa daga. Skólastarf hefst aftur skv. stundaskrá þriðjudaginn 27. febrúar. Hafið það gott í fríinu. Starfsfólk Vallaskóla.
Vetrarfrí
Við minnum á að föstudaginn 23. febrúar og mánudaginn 26. febrúar er vetrarfrí í grunnskólum Árborgar. Vallaskóli og frístundarheimilið Bifröst verða því lokuð þessa daga. Skólastarf hefst aftur skv. stundaskrá þriðjudaginn 27. febrúar. Hafið það gott í fríinu. Starfsfólk Vallaskóla.
Betri svefn
Í samstarfi við Árborg, Samborg og foreldrafélög Vallaskóla og Sunnulækjarskóla verðum við með frábæran viðburð í Austurrými Vallaskóla þriðjudagskvöldið 27. febrúar kl. 19.30-21.30. Gengið inn frá Engjavegi. Umfjöllunarefni að þessu sinni er SVEFN.
Lífið er læsi
,,Þriðjudaginn 20. febrúar sl. var hátíðleg athöfn í Vallaskóla þar sem fulltrúar leik- og grunnskóla í Árborg tóku á móti læsisveggspjöldum. Þau eru hluti af nýlegri læsisstefnu og geta skólarnir nú hengt þau upp á öllum leikskóladeildum og skólastofum grunnskólanna.
Varðandi veður og færð
Við minnum foreldra og forráðamenn nemenda á eftirfarandi verklag þegar kemur að slæmu veðri og ófærð: ,,Í óveðri eða mikilli ófærð verða foreldrar sjálfir að meta aðstæður og ákveða hvort nemendur verði sendir í skólann.
Framkvæmdir hafnar
Nú er komið að því. Framkvæmdir eru að hefjast við hina svokölluðu útigarða í vesturálmu Sólvalla.
Perlukarl
Baldvin Barri í 4. bekk gerði þennan stóra flotta perlukarl um daginn. Fyrst var hann einn í þessu en hægt og bítandi breyttist myndin í samvinnuverkefni þar sem margir hjálpuðu til við að flokka perlur eftir lit og jafnvel raða […]
Innritun í grunnskóla skólaárið 2018−2019
Innritun barna sem eru fædd árið 2012 og eiga að hefja skólagöngu í Sveitarfélaginu Árborg haustið 2018 fer fram 14.−28. febrúar næstkomandi. Hægt er að innrita rafrænt í viðkomandi grunnskóla og frístundaheimili inni á Mín Árborg sem er á heimasíðu […]
