Fréttir

Efnafræði er einföld og skemmtileg

Vísindaleg vinnubrögð, einföld efnafræði, hamur efna og hamskipti. Þetta er nokkuð sem kennt er í 7. bekk og er kennslubókin Auðvitað heimilið notuð til hliðsjónar. Á miðvikudögum gera nemendur einfaldar tilraunir og skýrslur eru gerðar eftir hverja tilraun.

Hvað veist þú um lífið í tjörninni?

Kennarar eru sérfræðingar í að skapa nemendum námsumhverfi til aukins þroska, skilnings og skemmtunar. Ein aðferðin er að nýta nærumhverfið. Nemendur í 6. HS fóru í vettvangsferð að tjörninni við Gesthúsasvæðið. Markmið var vísindalegs eðlis, að skoða lífið í tjörninni og reyna að finna og skoða þær lífverur sem þar lifa. Nemendur voru til fyrirmyndar …

Hvað veist þú um lífið í tjörninni? Lesa meira »

Skólabókabókasafn Vallaskóla – Bókatitlar skrifaðir á glervegg

Linda Björg Perludóttir stjórnar skólabókasafni Vallaskóla af mikilli röggsemi. Í tilefni bókasafnsdagsins 8. september sl. fékk hún nemendur til að skrifa nafnið á uppáhaldsbókinni sinni á glervegginn fyrir framan safnið. Það þótti krökkunum spennandi og skemmtilegt, ekki síður þeim sem áttu leið fram hjá að sjálfsögðu. Þarna mátti sjá litríka flóru bókatitla og það er …

Skólabókabókasafn Vallaskóla – Bókatitlar skrifaðir á glervegg Lesa meira »

Í heimsókn á Bessastöðum

Það vakti líklega athygli margra en fyrir nokkrum dögum var sagt frá því í fjölmiðlum að nemandi í Vallaskóla fór í heimsókn á Bessastaði. Þetta var hún Hekla Rán Kristófersdóttir nemandi í 6. SKG.

Áttu korter á dag?

Kynning verður á læsissáttmála Heimilis og skóla í Vallaskóla fimmtudaginn 1. september kl. 18:00. Foreldrar/forráðamenn eru eindregið hvattir til að mæta. Kynningin fer fram í Austurrýminu á Sólvöllum. Gengið er inn Engjavegsmegin.