Marín er glímudrottning Íslands
Íslandsglíman fór fram á Reyðarfirði núna um helgina. Og það er gaman að segja frá því að Marín Laufey Davíðsdóttir, 10. HLG, hlaut Freyjumenið og sæmdarheitið glímudrottning Íslands. Innilega til hamingju með það!
Marín er glímudrottning Íslands Read More »

Föstudaginn 25. mars var 7. LDS dreginn út hjá Lýðheilsustöð og fékk að launum gjafabréf til hvers nemanda í Skífunni. Bekkurinn er þátttakandi í verkefninu ,,Reyklaus bekkur” og voru fjórir bekkir dregnir út.
Fyrir stuttu fengum við í 3. bekk skemmtilega heimsókn frá Elfu Íshólm sem vinnur á Einkaleyfastofu. Hún kynnti fyrir okkur hugverk sem eru hugmyndir eða hönnun sem fólk á, til dæmis tónlist, bækur, vörumerki, nýtt útlit á síma eða uppfinning.
Strákarnir í hljómsveitinni My Final Warning stóðu sig vel í undankeppni Músíktilrauna á þriðjudaginn. Þeir eru komnir áfram í keppninni eftir að dómnefnd kvöldsins valdi þá drengi til að spila á lokakvöldinu. m.jpg)
Frá upphafi Vallaskóla hafa þeir sem sinna sérkennslu í Vallaskóla í fullu starfi farið í fræðslu- og kynnisferðir einu sinni á ári.
Íþróttadagur var haldinn í dag í Vallaskóla. Þar var fyrirferðarmikil keppnin milli kennara og nemenda í 10. bekk en keppt var í nokkrum íþróttagreinum í íþróttasalnum á Sólvöllum. Bæði lið voru hvött dyggilega af nemendum uppi í stúku.