Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Lesið í leikskólanum

By Sigurður Halldór Jesson | 14. nóvember 2014

Nemendur í 6. bekk heimsóttu leikskólann Álfheima í dag. Þar settust þeir niður með leikskólakrökkunum og lásu fyrir þá. Ekki var annað að sjá en almenn ánægja væri með þetta framtak. Í lokin fengu allir notið upplestur frá skáldi í sal Álfheima. Fleiri myndir má sjá á Facebook síðu Vallaskóla.

Annaskipti í nóvember

By Sigurður Halldór Jesson | 14. nóvember 2014

Annaskiptin eru framundan.   Mánudaginn 17. nóvember er starfsdagur í Vallaskóla. Nemendur eru þá í fríi. Opið á skólavistun fyrir þá sem eru skráðir.   Þriðjudaginn 18. nóvember er foreldradagur. Nemendur og forráðamenn þeirra koma þá til foreldraviðtals hjá umsjónarkennara. Farið verður yfir námsmat, námslega stöðu og líðan. Mætt er skv. viðtalsyfirliti umsjónarkennara. Opið á …

Annaskipti í nóvember Read More »

Loftboltaáskorun

By Sigurður Halldór Jesson | 11. nóvember 2014

Kennarar skoruð á nemendur 10. bekkjar í svo köluðum loftbolta í síðasta tíma fyrir hádegi í dag. Ekki er að spyrja að því að kennarar rótburstuðu nemendur enda algjörir sérfræðingar í þessari íþrótt.   Fleiri myndir á Facebooksíðu Vallaskóla.

Skopparakringlukeppni

By Sigurður Halldór Jesson | 10. nóvember 2014

  Krakkarnir í 6. bekk hafa undanfarna smíðatíma verið að dunda sér við að búa til skopparakringlur. Í dag var afrakstur erfiðisins prófaður og haldin árleg skopparakringlukeppni. Almenn ánægja var með gæði skopparakringlanna og þegar upp var staðið voru allir sigurvegarar.

Dagur gegn einelti

By Sigurður Halldór Jesson | 7. nóvember 2014

Dagur gegn einelti var haldinn í Vallaskóla 8. nóvember. Í tilefni dagsins var ,,grænn dagur „ í skólanum. Allir áttu að mæta í einhverju grænu. Skóladagurinn byrjaði á allsherjar bekkjarfundi.  Umræðuefnið var  Samkennd og vinátta. Í lok skóladagsins  var söngstund í íþróttasalnum, þar sem þrír kennarar við skólann léku undir fjöldasöng allra nemenda og starfsmanna, …

Dagur gegn einelti Read More »