Fréttasafn
Fréttir frá Vallaskóla
Vorönn hafin
Það fylgir annaskilunum og foreldradegi í febrúar að kíkja á Handverkssýningu Vallaskóla og fá sér köku og kakó.
Vetrarfrí
Dagur tvö í vetrarfríi, þriðjudaginn 26. febrúar. Sjáumst á morgun í skólanum, 27. febrúar.
22. febrúar 2013 Burstum tennurnar
Hér eru tvö myndbönd sem eru á síðu landlæknisembættis og fjalla um tannburstun. Tannburstun 1 Tannburstun 2
21. febrúar 2013 Af hverju er gott að drekka vatn?
Kæru foreldrar/forráðamenn Hér fáið þið nokkra punkta um af hverju við eigum að velja vatn til drykkjar umfram aðrar drykkjarvörur. Af hverju er gott að drekka vatn? Stærstur hluti mannslíkamans er vatn en nægilegt magn vökva er nauðsynlegt til að […]
Foreldradagur/viðtöl
Foreldraviðtöl og afhending einkunna á vetrarönn fara fram í dag hjá umsjónarkennurum – sjá að öðru leyti fundarboð frá þeim. Minnum á veitingasölu ferðanefndar foreldra nemenda í 10. bekk til styrktar útskriftarferðinni í vor.
Starfsdagur
Nú undirbúa starfsmenn skólans annaskil og foreldraviðtöl á morgun. Nemendur eru í fríi í dag.
Langar þig í vöfflu með rjóma?
FJÁRÖFLUN vegna útskriftarferðar nemenda í 10. bekk á FORELDRADEGINUM miðvikudaginn 20. febrúar næstkomandi. Ilmandi skúffukökur og rjúkandi kakó á boðstólum ásamt SELFOSS – bolum á gjafverði. – Ferðanefnd foreldra.
Starfskynningar í 10. bekk
Starfskynningar í 10. bekk fara fram 13. og 14. mars. 15. mars skila nemendur svo af sér skýrslu um starfskynningarnar.
Rósaball
NEVA, Nemendafélag Vallaskóla, mun halda Rósaball 14. febrúar fyrir nemendur í 8.-10. bekk – Austurrýminu á Sólvöllum. Rósaballið er ólíkt öðrum böllum að því leyti að dansfélagi hvers og eins þátttakanda verður dreginn út fyrir fyrsta dans kvöldsins. Nemendur fá […]
