thorvaldur

Þemadagar

Þemadagar í Vallaskóla verða dagana 9. og 10. apríl (miðvikudag og fimmtudag) og þemað í ár kallast Listin í nærumhverfinu. Allir eru orðnir spenntir því nú munum við einblína á listagyðjuna og tengja hana sem mest við umhverfi skólans, eins og titill þemans ber með sér.

Hátíð sem lifir og dafnar

Stóra upplestrarkeppnin, á svæði Vallaskóla, fór fram í Þorlákshöfn fimmtudaginn 3. apríl sl. Hátíðin var haldin í Versölum, samkomu- og ráðhúsi Þorlákshafnarbúa. Fulltrúar úr fimm skólum tóku þátt eða úr Vallaskóla, Sunnulækjarskóla, Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri, Grunnskóla Þorlákshafnar og Grunnskólanum í Hveragerði. Að auki var boðið upp á tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Árnesinga og tónlistarmaðurinn …

Hátíð sem lifir og dafnar Lesa meira »

Kveikjum áfram!

Þá er annarri umferð lokið í spurningakeppninni KVEIKTU. Fyrri leikurinn var æsispennandi en fór svo að lokum að piltarnir í 9. MM sigruðu 10. SHJ. 

Stóra upplestrarkeppnin

Stóra upplestrarkeppnin heldur áfram för sinni og núna er það lokakeppnin á svæði Vallaskóla. Hún fer fram í dag, fimmudaginn 3. apríl, í Þorlákshöfn og hefst kl. 14.00. Skólar sem taka þátt eru: Grunnskóli Þorlákshafnar, Grunnskóli Hveragerðis, Vallaskóli, Sunnulækjarskóli og Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri. Fulltrúar Vallaskóla úr 7. bekk eru: Haukur Páll Hallgrímsson, Þórunn …

Stóra upplestrarkeppnin Lesa meira »

Nýjasta úr Kveiktu

Nú er ljóst hvaða fjögur lið keppa í undanúrslitum næsta föstudag (3. apríl) í fyrsta og öðrum tíma. Kl 8:10 9. MM keppir við 10. SHJ. Kl 8:50 8. HS keppir við 10. RS.