thorvaldur

Umhverfið að lifna við

Um leið og við fögnum sumarbyrjun á morgun þá er rétt að gleyma nú ekki umferðarmálunum. Hér má nálgast nýútgefnar leiðbeiningar frá Umferðarstofu um notkun vél- og rafknúinna hjóla.

HPV bólusetning stúlkna í 7. og 8. bekk

Til foreldra/forráðamanna stúlkna í 7. og 8. bekk. Nú er komið að síðustu bólusetningunni við leghálskrabbameini en til að verða full bólusettur gegn HPV veirunni þarf að fá allar 3 sprauturnar. Á mánudaginn 16. apríl mun Halla hjúkrunarfræðingur bólusetja stelpurnar og þær sem eiga bólusetningarskirteini geta komið með það svo ég geti skráð í það.  …

HPV bólusetning stúlkna í 7. og 8. bekk Lesa meira »

Reipisjóga!!

Krakkarnir í 10. bekkjum Vallaskóla bjóða upp á prufutíma í Rope Yoga í Lifandi Húsi, laugardaginn 21. april klukkan 10, 11 eða 12. 1500 krónur prufutími.

Nýr matseðill

Velkominn aftur til starfa eftir gott páskafrí. Við byrjum á því að benda á að matseðill aprílmánaðar er kominn á heimasíðuna.

Flóamarkaður

Nemendur í 10. bekk Vallaskóla á Selfossi halda flóamarkað í Tryggvaskála miðvikudaginn 4. apríl klukkan 11-18.Þar verður einnig hægt að kaupa gómsætar tertur til að taka með sér og/eða setjast niður og fá sér kaffi/kakó og vöfflur.Allur ágóði fer í ferðasjóð nemenda.

Páskarnir komnir!

Það tilheyrir páskunum að föndra eilítið í gulu. Hér má sjá þessa fínu unga sem nemendur í 3. ÁRJ gerðu úr dagblöðum og veggfóðurslími.