Undanfarnar vikur hafa nemendur í 10. árgangi verið að vinna að verkefni um stjórnmál. Endapunkturinn á því var að vinna í hópum og mynda stjórnmálaflokk með öllu sem því fylgir. Í gær var kosningakaffi sem lesendur þessarar síðu fengu nasaþef af á Facebook og Instagram síðum skólans. Í dag var svo blásið til kappræðna þar sem formenn flokkanna kynntu stefnumál þeirra fyrir samnemendum sínum. Fundarmenn fengu að spyrja forvígismenn flokkana spurninga og fjörugar umræður spunnust út frá þeim. Í lokinn var svo efnt til kosninga þar sem kosið var á milli flokka. Kjörgarétt höfðu nemendur 7. til 10 árgangs. Niðurstöður kosninga voru kynntar eftir hádegi að yfirstaðinni leynilegri talningu atkvæða. Í myndasafni gefur að líta myndir frá deginum.


















