Heimsókn frá Danmörku

Hópur kennara frá Ådalens privat skole komu og tók hús á okkur í síðustu viku. Kynntu þau sér skólastarf á öllum stigum auk þess sem þau fengu sérstaka kynningu á starfinu í unglingadeild.

Ådalens skólinn er staðsettur í byggðarkjarna sem heitir Frederikssund ekki langt frá Kaupmannahöfn. Skólinn er svipaður að stærð og Vallaskóli. Við þökkum þeim fyrir komuna til okkar.

Fréttinni fylgir mynd af hópnum.