Barnamenningarhátíð Árborgar er haldinn í fyrsta sinn þetta árið. Í tengslum við hana var haldin ljóðasmkeppni í grunnskólum sveitarfélagsins. Nemendur í unglingadeild sendu inn ljóð. Það er skemmst frá því að nemendur Vallaskóla hnepptu þrjú efstu sætin. Í fyrsta sæti var Bylgja Hrönn Ívarsdóttir og í öðru og þriðja sæti voru Sveinbjörn Hagalín Ólafsson og Steinn Steinar Steinarsson. Á opnunarhátíðinni fluttu verðlaunhafarnir ljóð sín. Erum við mjög stolt af þeim og óskum þeim til hamingju með árangurinn.
Nánari upplýsingar um Barnamenningarhátið Árborgar má nálgas á vef Sveitarfélgsins Árborgar.

