Þorgrímur Þráins í heimsókn
Í dag, föstudaginn 20. apríl, mun Þorgrímur Þráinsson halda forvarnafræðslu fyrir nemendur í 10. bekk. Erindi hans heitir ,,Eltu drauminn þinn“. Pokasjóður styrkir þessa fyrirlestra en sjóðurinn vill láta gott af sér leiða — leitast við að styrkja sjálfsmeðvitund nemenda áður en þeir fara í framhaldsskóla. Hver fyrirlestur tekur 80 mínútur.
Sumrinu fagnað
Þó kalt sé í veðri þá er engu að síður komið sumar skv. dagatalinu. Ástæða var að fagna því sérstaklega auðvitað.
Það munaði svo litlu
Á miðvikudaginn var keppti spurningaliðið okkar (þær Guðrún, Halldóra Íris og Hrafnhildur) í undanúrslitum Spurningakeppni grunnskólanna.
Sumardagurinn fyrsti
Í dag er frí í skólanum vegna sumardagsins fyrsta, fimmtudaginn 19. apríl. Sjáumst hress og kát á morgun.
Árshátíð í 3. bekk
Árshátíð í 3. bekk fer fram í Austurrými Sólvalla í dag, miðvikudaginn 18. apríl, kl. 17.30. Sjá nánar upplýsingar frá umsjónarkennurum.