Foreldrakynning í 4. bekk
Foreldrakynningar í 4. bekk verða miðvikudaginn 11. september frá kl. 8.10-9.00. Mæting er í stofu 12. Gengið er inn um aðalanddyri eða inn vesturgang gengt Tryggvagötu. Nemendur verða í íþróttatíma á meðan foreldrakynningu stendur.
Fræðslufundur um nýja aðalnámskrá
Ný aðalnámskrá grunnskóla boðar talsverðar breytingar og uppstokkun á starfsháttum og inntaki náms á íslandi. Af þeim sökum standa Heimili og skóli og SAFT fyrir kynningarfundum víðs vegar um landið árið 2013 þar sem foreldrum er boðið að koma og fræðast um nýja námskrá. Fundur verður haldinn á Selfossi þriðjudaginn 10. september kl. 19.30 á sal Sunnulækjarskóla. Á …
Foreldrakynningar í 9. og 10. bekk
Boðað er til foreldrakynningar í 9. og 10. bekk mánudaginn 9. september kl. 8.10-9.30. Mæting er í Austurrýminu á Sólvöllum – gengið er inn Engjavegsmegin. Nemendur í 9. og 10. bekk mæta fyrst kl. 9.30 sama dag. Sjá einnig upplýsingar frá umsjónarkennurum. Deildarstjóri.
4. september 2013 Aukum neysluna á ávöxtum og grænmeti
Kæru foreldrar/forráðamenn Vallaskóli er þátttakandi í verkefninu Heilsueflandi grunnskóli og á þessu starfsári verkefnisins sem líkur 30. september erum við að vinna með mataræði og tannheilsu. 1. október nk. hefst nýtt starfsár og þá munum við vinna með hreyfingu og öryggi ásamt því að halda áfram með verkefni þessa árs. Liður í verkefninu þetta starfsárið …
4. september 2013 Aukum neysluna á ávöxtum og grænmeti Read More »
Útileikfimi 23. ágúst – 6. september
Foreldrar eru minntir á að útileikfimi stendur yfir hjá nemendum tímabilið 23.8-6. september. Haga skal klæðnaði samkvæmt því. Sjá nánar í upplýsingariti sem sent var í Mentorpósti eða hér á heimasíðu undir ,,Fréttabréf“ (til hægri á forsíðu) og þar næst í ,,Foreldrabréf“.