Iðnámsval í heimsókn hjá Bílaþjónustu Péturs ehf
Föstudaginn 17. janúar heimsóttu nemendur í Iðnnámsvali Bílaþjónustu Péturs ehf. Vel var tekið á móti þeim og þau frædd um nýjustu strauma og stefnur í bifvélavirkjun. Hér fyrir neðan gefur að líta mynd af hópnum ásamt kennaranum sínum.

Rafrænt nám má stunda alls staðar
Í síðustu viku lauk rafrænni námslotu hjá 8. bekk. Tekist var á við fjölbreytt verkefni og teygja þau sig inn í flestar námsgreinar. Nemendur eru ekki bundnir að því að stunda námið í hefðbundnum skólastofa eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem hentar mörgum vel. Nú er að hefjast tveggja vikna námslota hjá 9. bekk og …
SAFT fyrirlestur
Á morgun, miðvikudaginn 14. janúar, verður fyrirlestur fyrir foreldra allra barna í Árborg og verður hann haldinn í Sunnulækjarskóla og hefst kl. 17.30 og lýkur kl. 19.30.
SAFT og Sigga Dögg með fyrirlestur fyrir
Í dag fengu nemendur 9. og 10. bekkjar heimsókn frá kynfræðingnum Siggu Dögg. Voru fyrirlestrar hennar kynjaskiptir og var góður rómur kveðinn að því fyrirkomulagi. Hér má nálgast upplýsingar um fyrirlesturinn: Upplýsingar um fyrirlestur. Eins komu fulltrúar frá SAFT verkefninu og fræddu nemendur 6. bekkjar um öryggi á Internetinu. Upplýsingar má nálgast á heimasíðu …