Matseðill septembermánaðar
Matseðill septembermánaðar er nú til reiðu á heimasíðunni. Sjá hér.
Áttu korter á dag?
Kynning verður á læsissáttmála Heimilis og skóla í Vallaskóla fimmtudaginn 1. september kl. 18:00. Foreldrar/forráðamenn eru eindregið hvattir til að mæta. Kynningin fer fram í Austurrýminu á Sólvöllum. Gengið er inn Engjavegsmegin.
Kynningarfundur um rafrænt nám á efsta stigi
Fyrir liggur hjá okkur á elsta stigi Vallaskóla að allt námsefni verður aðgengilegt á google classroom og stór hluti þess unninn í gegnum það kerfi. Til að kynna foreldrum og forráðamönnum námsumhverfið okkar verður boðið upp á stuttan kynningarfund mánudaginn þann 29. ágúst. Farið verður yfir helstu hluti varðandi Classroom og hvernig þið getið fylgst með …
Matseðill ágústmánaðar
Þá er matseðill ágústmánaðar kominn á heimasíðu, sjá hér.
Skólasetning skólaárið 2016-2017
Skólasetning fer fram í íþróttahúsi Vallaskóla. Kl. 10:00 Nemendur í 2.−5. bekk, f. 2006−2009. Kl. 11:00 Nemendur í 6.−10. bekk, f. 2001−2005. Nemendur í 1. bekk (f. 2010) og forráðamenn þeirra eru boðaðir sérstaklega í viðtöl eins og þegar hefur verið tilkynnt. Foreldrar eru hvattir til að mæta með börnum sínum þennan fyrsta skóladag.