Skólasetning, mánudaginn 22. ágúst
Kl. 10:00 Nemendur í 2.−5. bekk, f. 2006−2009. Kl. 11:00 Nemendur í 6.−10. bekk, f. 2001−2005. Skólasetning fer fram í íþróttahúsi Vallaskóla. Nemendur í 1. bekk (f. 2010) og forráðamenn þeirra eru boðaðir sérstaklega í viðtöl eins og þegar hefur verið tilkynnt. Foreldrar eru hvattir til að mæta með börnum sínum þennan fyrsta skóladag.
Námsmat á mörkum skólastiga í Árborg
Eins og kannski flestir vita þá boðar ný Aðalnámskrá leik-, grunn- og framhaldsskóla nokkrar breytingar á tilhögun náms. Á vordögum sem leið var ákveðið að efna til samstarfs og verkefnavinnu á milli skólastiganna í Árborg um um þetta mikilvæga og umfangsmikla málefni. Fyrsti fundur með kennurum verður 11. ágúst nk. kl. 13–16 í Sunnulækjarskóla en verkefnisstjóri …
Afgreiðslutími skrifstofu eftir sumarleyfi
Skrifstofa Vallaskóla opnar mánudaginn 8. ágúst kl. 8.00.