Fréttasafn

Fréttir frá Vallaskóla

Ævintýrið í mér

30. október 2013

Fyrsta skóladaginn eftir haustfríið, eða þriðjudaginn 22. október, fengu nemendur 4. – 6. bekkja rithöfund í heimsókn. Þar var á ferðinni Brynja Sif Skúladóttir rithöfundur að kynna bókina sína, Nikký og slóð hvítu fiðrildanna, og vinna með verkefni sem hún […]

Norrænt skólahlaup og norrænt júdó

25. október 2013

Norræna skólahlaupið fór fram í góðu haustveðri og það voru allir nemendur skólans sem tóku þátt í því. Vegalengdirnar í hlaupinu eru 2,5 km, 5,0 km og 10 km.

NEVA Fundur 24. október 2013

25. október 2013

NEVA fundur 24. október 2013. Mætt: Ívar, Þórunn, Guðbjörg, Þóra, Sunneva. Aðrir forfallaðir. Fundargerð MIM. 1. Matur verður í höndum mötuneytis. 2. Hljómsveit, beðið eftir tilboði frá „Made in Sveitin“. 3. Þemaskreytingar, vanda valið í skreytinganefnd, fyrst nemendur úr 10. […]

Alþjóðlegi bangsadagurinn

24. október 2013

Alþjóðlegi bangsadagurinn verður haldinn í dag, 24. október. Dagskrá í yngri deild (1.-6. bekkur). Það verður bangsadiskó fyrir 1. – 6. bekk í íþróttasalnum á Sólvöllum. Nemendur mega koma í náttfötum og með bangsa á diskóið.  

Víkingar og fornleifafræði

24. október 2013

Í samfélagsfræði í 5. bekk er verið að vinna með víkingaöldina. Við notum söguaðferðina og setjum okkur í spor víkinga. Búum til skip, persónur og hluti sem taka þarf með í siglingu milli landa og fjöllum síðan um hvernig bera eigi sig […]

Rithöfundur í heimsókn

22. október 2013

Brynja Sif Skúladóttir rithöfundur mun heimsækja nemendur í 4.-6. bekk þriðjudaginn 22. október. Gert er ráð fyrir líflegum umræðum um ævintýraheima og eiga nemendur að vera búnir að undirbúa sig fyrir heimsóknina. Verkefnið kallar Brynja Ævintýrið í mér. Um leið […]

Haustfrí

22. október 2013

Vallaskóla 16.10 2013 Ágætu foreldrar og forráðamenn.   Minnum á haustfrí föstudaginn 18. október til og með mánudagsins 21. október. Kennsla í Vallaskóla hefst aftur samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 22. október.  Ath. að það er einnig lokað á skólavistun.   Hafið […]

Haustfrí

21. október 2013

Það er haustfrí mánudaginn 21. október. Allir í fríi í Vallaskóla – njótið vel!

Haustfrí

18. október 2013

Það er haustfrí föstudaginn 18. október. Allir í fríi í Vallaskóla – njótið vel!

Hvað er PALS?

17. október 2013

Krakkarnir í 4. bekk eru á fullu í PALS, sem er lestraraðferð þar sem pör lesa saman. Þar lesa krakkarnir fyrir hvort annað, leiðrétta og hrósa hvort öðru. Auk þess að lesa þurfa krakkarnir að velta fyrir sér innihaldi textans […]

9. október 2013 Hvað nú foreldrar!

16. október 2013

Forvarnadagurinn var haldinn í áttunda sinn miðvikudaginn 9. október sl. Hann er haldinn að frumkvæði forseta Íslands í samvinnu við Samband íslenskra sveitarélaga, íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Bandalag íslenskra skáta, Reykjavíkurborg, Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Lyfjafyrirtækið […]

Komdu og skoðaðu bílinn!

16. október 2013

Nemendur í 2. bekk hafa verið að vinna verkefni í tengslum við bókina Komdu og skoðaði bílinn.