Fréttasafn
Fréttir frá Vallaskóla
Foreldradagur
Í dag mæta nemendur með forráðamönnum til foreldraviðtals hjá umsjónarkennara sínum. Sjá viðtalaskrá umsjónarkennara. Minnum á veitingasölu foreldra og nemenda í 10. bekk til styrktar útskriftarferð sinni í vor. Í boði er að kaupa vöfflur með rjóma/sultu, kaffi og kakó. […]
Við höfum gengið til góðs
Foreldrum í Vallaskóla er boðið að sækja málþing í Neskirkju og Hagaskóla föstudaginn 22. nóvember klukkan 9 – 16. Olweusaráætlunin gegn einelti „Við höfum gengið til góðs“ Opið málþing í Neskirkju og Hagaskóla 22. nóvember kl. 9-16 Vinsamlegast tilkynnið þátttöku […]
Starfsdagur
Nú undirbúa starfsmenn skólans foreldradag fyrir morgundaginn og annaskipti. Nemendur eru í fríi. Opið er á skólavistun.
Langar þig í vöfflu með rjóma?
Fjáröflun vegna útskriftarferðar nemenda í 10. bekk á foreldradeginum, á morgun – þriðjudaginn 19. nóvember. Að loknu foreldraviðtali er kjörið að setjast niður og fá sér hressingu. Veitingasalan fer fram í mötuneyti og anddyri.
8. nóvember og Eyþór Ingi
Þann 8. nóvember sl. var haldinn dagur gegn einelti um allt land. Í Vallaskóla voru bekkjarfundir í brennidepli á þessum degi en eins og allir vita þá skipa þeir stóran sess í Olweusaráætluninni gegn einelti.
Skákgjöf
Gunnar Egilsson og Sæunn Lúðvíksdóttir komu færandi hendi í Sunnulækjarskóla í morgun. Þau gáfu grunnskólum Árborgar 15 taflborð og taflmenn til að hvetja til aukinnar skákiðkunar í skólunum.
Gullin í grenndinni
Fyrir skemmstu fóru 6. GEM, 6. SKG, 2. GG og 2. GMS saman í skógarferð. Gengu nemendur ásamt kennurum sínum og stuðningsfulltrúum út í Vinaskóg.
6. nóvember 2013 Vissir þú!
…að rannsóknir sýna að börn sem njóta mikillar útiveru og útvistar eru glaðari, hraustari og klárari. Þau eru með meiri sjálfsaga, lausnamiðaðri og markvissari í hugsun. Þau búa yfir betra sjálfstrausti, sköpunargleði og eru samvinnufúsari. Setjið ykkur markmið – farið […]
Hlutfallslegir útreikningar
Nemendur í 8. bekk voru að læra um hlutföll í stærðfræði fyrir skemmstu og enduðu á því að vinna í hópum þar sem hver hópur valdi sér leikfang og átti að teikna mynd þar sem leikfangið var stækkað.
Starfskynningar í 10. bekk
Dagana 30.-31. október og 1. nóvember verða helgaðir starfskynningum í 10. bekk. Nemendur heimsækja fyrirtæki/stofnanir fyrstu tvo dagana en koma svo í skólann föstudaginn 1. nóvember og skila vinnubók og munnlegri skýrslu. ATH! að kennt er skv. stundaskrá 1. nóvember […]
