Á hverju ári er efnt til mikillar þrautahátíðar í 7. til 10. árgangi í Vallaskóla. Ber hún nafnið og á hún sér nokkuð langa sögu. Þrautirnar eru að ýmsu toga og reynir jafnt á andlegt sem líkamlegt hreysti nemenda. Dæmi um þrautir þessa árs má nefna: Flytja vatnið, málshættir, tímalínur, spilaborg og blástursþraut. Nemendum er skipt í hópa og ákveða þeir þema hópsins og fleira. Flippkisi gekk vel fyrir sig að vanda og allir skemmtu sér konunglega. Myndasyrpan hér fyrir neðan gefur nokkra mynd af gleðinni og einbeitingunni í hópnum.
























