Fréttir

Fyrsta Tómstundamessa Árborgar

Tómstundamessa var haldin í íþróttahúsinu Vallaskóla 31. ágúst sl. í samstarfi við grunnskóla, íþróttafélög, æskulýðsfélög og aðra aðila sem vinna með tómstundir barna á leik- og grunnskólaaldri í sveitarfélaginu Árborg.

Komdu að vinna með okkur!

Laus er til umsóknar 100% staða þroskaþjálfa og 100% staða stuðningsfulltrúa á yngsta stigi við Vallaskóla á Selfossi. Ennfremur er laus tímabundin 100% staða sérkennara vegna afleysinga skólaárið 2017-2018. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Skólasetning skólaárið 2017-2018

Grunnskólar Sveitarfélagsins Árborgar verða settir þriðjudaginn 22. ágúst 2017. Skólasetning Vallaskóla fer fram í íþróttahúsi Vallaskóla sem hér segir: Kl. 10:00  Nemendur í 2.−5. bekk,  f. 2007−2010. Kl. 11:00  Nemendur í 6.−10. bekk,  f. 2002−2006. Gert er ráð fyrir stuttri samkomu í íþróttasal en síðan munu nemendur og foreldrar hitta umsjónarkennara. Nemendur í 1. bekk …

Skólasetning skólaárið 2017-2018 Lesa meira »

Það er skemmtilegt að kenna með okkur!

Hjá okkur í Vallaskóla er laus til umsóknar 100% staða umsjónarkennara. Áhugasamir hafi samband við Þorvald H. Gunnarsson skólastjóra í síma 480 5800 eða á netfangið thorvaldur@vallaskoli.is. Umsóknarfrestur er til 10. ágúst 2017. Viðamiklar upplýsingar um skólann er að finna hér á vef skólans www.vallaskoli.is . Starfið hentar jafnt körlum sem konum.

Tölvukaupleiga, kynningarfundur

Miðvikudaginn 21. júní næstkomandi ætlar starfsfólk Vallaskóla að bjóða foreldrum nemenda  á stuttan kynningarfund. Farið verður yfir öll helstu mál er varða innleiðingu á Ipad-spjaldtölvum með kaupleigu. Niðurstöður úr viðhorfskönnun foreldra kynntar og spurningum sem bárust þar verður svarað.

Komdu að kenna í Vallaskóla

Lausar eru til umsóknar 100% stöður forfallakennara og kennara í leikrænni tjáningu við Vallaskóla. Áhugasamir hafi samband við Guðbjart skólastjóra í síma 480 5800 eða á netfangið gudbjartur@vallaskoli.is. Umsóknarfrestur er til 1. júlí 2017.