Á döfinni

Útskriftarferð

Í dag, miðvikudaginn 30. apríl, fara nemendur í 10. bekk í útskriftarferð sína en farið verður á Bakkaflöt. Ferðin stendur yfir í tvo daga.

List í nærumhverfi

Næstkomandi föstudag, 25. apríl, verður opnuð sýningin List í nærumhverfi, en sýningin er afrakstur þemadaga í Vallaskóla sem haldnir voru fyrr í mánuðinum. Um er að ræða listsýningu 519 listnema í Vallaskóla og tengist dagskrá hátíðarinnar Vor í Árborg. Sýningin opnar með formlegum hætti kl. 13.00 og er opin gestum og gangandi til kl. 17.00. …

List í nærumhverfi Lesa meira »

Lokakeppni Kveiktu

Í dag, föstudaginn 11. apríl, fer fram úrslitakeppnin í Kveiktu. Ath. skv. skóladagatali átti að vera íþróttadagur í dag en þeim viðburði er frestað fram yfir páska.