thorvaldur

Foreldrakynning í 8. bekk

Kynning á skólastarfinu fyrir foreldra/forráðamenn nemenda í 8. bekk verður haldin miðvikudaginn 5. september kl. 8.10. Kynningin verður í Austurrýminu á Sólvöllum. Gengið er inn Engjavegsmegin. 

Fari það í bjöllulaust!

Það kom að því. Eitt helsta tákn iðnbyltingar er hljóðnað. Samhliða breyttum tímaási í skólastarfinu var ákveðið að hætta að hringja skólabjöllunni, enda eru frímínútur og matur á mismunandi tímum eftir stigum.

Matseðill

Matseðill septembermánaðar er kominn á heimasíðu. Af öðru efni á heimasíðunni, s.s. nýir nemendalistar, námskrá ofl., þá er það í vinnslu og mun birtast innan tíðar. Viðtalstímar kennara eru að mestu komnir á sinn stað – undir starfsmenn.

Foreldrakynningar

Foreldrakynningar verða að öllu jöfnu haldnar á tímabilinu 27.8-7.9 skv. skóladagatalinu. Það er þó með fyrirvara en tímasetning getur breyst vegna óviðráðanlegra orsaka.   Foreldrar/forráðamenn fá tilkynningu um hvenær þeir eiga að mæta á kynningu en það er misjafnt á hverju stigi. Einnig má fylgjast með hér á heimasíðunni.

Útileikfimi

Það fylgir fyrstu dögum skólaársins að íþróttatímarnir fara fram úti í góða veðrinu. Nemendur í 2.-10. bekk eiga sem sagt að byrja í útiíþróttum eða útileikfimi frá og með morgundeginum, fimmtudaginn 23. ágúst sem hér segir:

Skólasetning 2012-2013

Skólasetning skólaárið 2012-2013 verður miðvikudaginn 22. ágúst.     Nemendur mæta sem hér segir: 2., 3. og 4. bekkur kl. 9.00. Íþróttasal Vallaskóla. 5., 6. og 7. bekkur kl. 10.00. Íþróttasal Vallaskóla. 8., 9. og 10. bekkur kl. 11.00. Íþróttasal Vallaskóla. Gengið er inn um aðalanddyri skólans, norðanmegin á Sólvöllum.   Foreldrar eru hjartanlega velkomnir!   …

Skólasetning 2012-2013 Read More »