thorvaldur

Bíómiðar

Í tilefni af opnum Selfossbíó gaf bæjarstjórn Árborgar öllum grunnskólabörnum í Árborg bíómiða og gildir miðinn fram í nóvember. Flestir umsjónarkennarar hafa nú þegar dreift miðunum til nemenda Vallaskóla. Við í Vallaskóla þökkum fyrir okkur.

Bíómiðar Read More »

Borða íslensk börn minnst allra barna í Evrópu af ávöxtum og grænmeti?

Vallaskóli er þátttakandi í verkefninu Heilsueflandi grunnskóli og á þessu starfsári verkefnisins, sem líkur 30. september, erum við að vinna með mataræði og tannheilsu. 1. október nk. hefst nýtt starfsár og þá munum við vinna með hreyfingu og öryggi ásamt því að halda áfram með verkefni þessa árs.

Borða íslensk börn minnst allra barna í Evrópu af ávöxtum og grænmeti? Read More »

23. ágúst 2013 Útileikfimi og upplýsingarit íþróttakennara Vallaskóla

Foreldrar eru minntir á að útileikfimi stendur yfir hjá nemendum tímabilið 23.8-6. september. Haga skal klæðnaði samkvæmt því. Sjá nánar í upplýsingariti sem sent var í Mentorpósti eða hér á heimasíðu undir ,,Fréttabréf“ (til vinstri á forsíðu) og þar næst í ,,Foreldrabréf“.

23. ágúst 2013 Útileikfimi og upplýsingarit íþróttakennara Vallaskóla Read More »

Skólasetning 2013-2014

  Skólasetning verður fimmtudaginn 22. ágúst í íþróttasal Vallaskóla.   Nemendur yngsta stigs og foreldrar þeirra (1.-4. bekkur) mæta kl. 9.00. Nemendur miðstigs og foreldrar þeirra (5.-7. bekkur) mæta kl. 10.00. Nemendur efsta stigs og foreldrar þeirra (8.-10. bekkur) mæta kl. 11.00. Nemendur í 1. bekk og foreldrar þeirra verða boðaðir sérstaklega.   Hlökkum til að sjá ykkur. Starfsfólk Vallaskóla.

Skólasetning 2013-2014 Read More »

Skólasetning

Nemendur yngsta stigs og foreldrar þeirra (1.-4. bekkur) mæta kl. 9.00. Nemendur miðstigs og foreldrar þeirra (5.-7. bekkur) mæta kl. 10.00. Nemendur efsta stigs og foreldrar þeirra (8.-10. bekkur) mæta kl. 11.00. Nemendur í 1. bekk og foreldrar þeirra verða boðaðir sérstaklega.

Skólasetning Read More »