Yngsta stig var með þemadaga dagana 27. 28. febrúar og 1. mars.
Þemað var „Á grænni grein“ og var athyglinni beint að endurnýtingu, umhverfisvernd og vellíðan. Nemendur fóru á 8 stöðvar með mismunandi áherslum og verkefnum. Þeir mjög áhugasamir og jákvæðir og gekk allt ljómandi.
Dagarnir tókust sérstaklega vel og enduðu þeir á að foreldrum, forráðamönnum og ættingjum var boðið að koma í heimsókn til að skoða afraksturinn . Við fengum marga góða gesti og þökkum við kærlega fyrir það.