Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Tölvufíkn – fræðsla fyrir 8. bekk

By thorvaldur | 22. apríl 2013

Kæru foreldrar og forráðamenn nemenda í 8. bekk. Tölvufíkn – kannast einhver við það? Viltu vita meira? Taktu þá frá mánudaginn 22. apríl kl. 8.10-9.30. Þorsteinn Kristján Jóhannsson kennari kemur í heimsókn og fjallar um tölvufíkn. Hann hefur farið víða um land með þessa fræðslu sl. ár og þekkir vel til málaflokksins. Þorsteinn mun hitta […]

Perfect

By thorvaldur | 19. apríl 2013

Nemendaleiksýningin Perfect verður sýnd miðvikudaginn 10. apríl og fimmtudaginn 11. apríl. Það er leiklistarval skólans sem setur upp sýninguna. Leikstjóri er Leifur Viðarsson kennari við Vallaskóla. Foreldrar eru velkomnir á sýninguna sem staðsett verður í Litla leikhúsinu, kjallaranum á Sólvöllum. Sýningarnar eru eftirfarandi: Miðvikudaginn 10.4: Kl. 9.10, 10.50 og 12.40. Fimmtudaginn 11.4: Kl. 9.10 og […]

Sýnt fyrir vini og vandamenn

By thorvaldur | 19. apríl 2013

Þann 11. apríl héldu 5. bekkingar árshátíðina sína. Þar sýndu þeir afrakstur vinnu vetrarins í leikrænni tjáningu. Börnin sýndu bæði leikrit eftir aðra og nokkra frumsamda leikþætti. Í lokin sungu þau saman lag á dönsku. Síðan gæddu allir sér á girnilegum kræsingum sem foreldrar lögðu til.

Árshátíð í 4. bekk

By thorvaldur | 18. apríl 2013

Árshátíð nemenda í 4. bekk verður haldin fimmtudaginn 18. apríl frá kl. 18.00. Hún verður staðsett í Austurrýminu á Sólvöllum. Foreldrar innilega velkomnir. Nánar í upplýsingapósti frá umsjónarkennurum.

Árshátíð í 3. bekk

By thorvaldur | 17. apríl 2013

Árshátíð nemenda í 3. bekk verður haldin miðvikudaginn 17. apríl frá kl. 17.30. Hún verður staðsett í Austurrýminu á Sólvöllum. Foreldrar innilega velkomnir. Nánar í upplýsingapósti frá umsjónarkennurum.