3. bekkur og vorblíða
Hér má sjá nokkrar myndir úr vorstarfinu í 3. IGU. Þó maímánuður hafi verið rysjóttur hvað veðrið varðar það sem af er þá hafa komið örfá tækifæri til að skella sér út í leik, nú eða í vettvangsferð t.d. í Mjólkursamsöluna.
SAFT – fræðsla fyrir fjölskyldur nemenda í 5. og 6. bekk
Fræðsla fyrir fjölskyldur nemenda í 5. og 6. bekk verður þriðjudaginn 16.5.2017 á sameiginlegum foreldrafundi fyrir skólana á Selfossi, í Sunnulækjarskóla frá kl. 17:30-19:00. Enn fremur er foreldrafundur á Stokkseyri miðvikudaginn 17. maí kl. 17:30-19:00 Erindi fyrir foreldra Í fræðsluerindinu er farið yfir einkenni tælingarmála og hvað beri að varast í samskiptum við ókunnuga, hvað …
SAFT – fræðsla fyrir fjölskyldur nemenda í 5. og 6. bekk Read More »
Umsóknarfrestur fyrir skráningar í Vinnuskóla Árborgar rennur út í dag
Opnað hefur verið fyrir umsóknir unglinga í vinnuskóla Árborgar 2017 og er umsóknarfrestur til og með mánudeginum 15. maí. Um er að ræða einstaklinga fædda á árunum 2001-2003. Það eru næg störf í boði fyrir unglingana en við skorum á foreldra að virða umsóknarfrestinn og drífa af umsóknarferlið. Varðandi þau ungmenni sem eru ekki viss …
Umsóknarfrestur fyrir skráningar í Vinnuskóla Árborgar rennur út í dag Read More »
SAFT – fræðsla fyrir nemendur í 5.-6. bekk
Fulltrúi SAFT kom í heimsókn í dag (mánudaginn 15.5.2017) og fræddi nemendur í 5.-6. bekk Vallaskóla um örugga netnotkun. (Mynd með frétt af www.saft.is)
Vallaskóli í Lundúnum
Fimm starfsmenn Vallaskóla fóru á dögunum til Lundúna og heimsóttu nokkra skóla og kynntu sér starfið þar.