Eftir frábæra fyrstu söngsamveru í íþróttasalnum var ákveðið að skella í aðra álíka.
Í þetta sinn var jólaþema og allir nemendur skólans og starfsfólk sungu jólalög af hjartans lyst og dönsuðu svo af innlifun í lokin jólazumba.
Sem fyrr var það starfsmannahljómsveit skólans,“Í grænum fötum“ sem hélt uppi stuðinu við mikinn fögnuð áheyrenda!