Fréttasafn
Fréttir frá Vallaskóla
Starfsdagur og haustþing kennara
Föstudaginn 7. október verður starfsdagur í Vallaskóla og haustþing kennara. Nemendur verða þá í fríi. Athygli skal vakin á því að kennslu lýkur kl. 12.40 fimmtudaginn 6. október vegna haustþings kennara.
Lesa Meira>>7. bekkur – bólusetning
Stúlkur í 7. bekk munu fá HPV-bólusetningu gegn leghálskrabbameini 5. október 2011 hér í Vallaskóla. Sjá frétt 23. september.
Lesa Meira>>Föstudagsfjör/yngsta stig
Yngsta stig hefur nú verið að undirbúa kynningu á októberdyggðinni. Kynningin mun fara fram á föstudagsfjöri 30. september.
Klukkan 11:20 munu nemendur yngsta stigs standa fyrir “Föstudagsfjöri” í íþróttasal Vallaskóla. Þar verður kvatt til vinsemdar og vináttu í söng, upplestri og leik.
Foreldrar yngsta stigs eru velkomnir í “fjörið”
Nemendur á yngsta stigi munu á næstu dögum heimsækja alla aðra bekki skólans og kynna dyggðina með gjöfum, söng og leik.
Fyrir hönd yngsta stigs
Jóna Hannesdóttir, deildarstjóri
Vinsemd fæðir vinsemd
…segir á einu plakatinu sem nemendur í 4. GMS færðu nemendum í 9. MA. Þetta er hverju orði sannara og átti vel við daginn í dag, 30. september, en nemendur á yngsta stigi kynntu októberdyggð skólans, vinsemd, og skelltu sér í föstudagsfjör.
Lesa Meira>>Lestrardagbókin afhent
Þær Sirrý og Elín komu í heimsókn og færðu nemendum í 7. bekk Lestrardagbókina að gjöf.
Lesa Meira>>Forvarnafundur
Miðvikudaginn 28. september nk. verður Jón Sigfússon frá Rannsókn og greiningu með kynningu á stöðu vímuefnaneyslu ungmenna í Árborg.
Fyrirlesturinn fer fram í Fjallasal Sunnulækjarskóla miðvikudaginn 28. september nk. og hefst kl. 20:00.
Foreldrar, forráðamenn og aðrir áhugasamir hvattir til að mæta.
Aðgerðahópur um forvarnir í Sveitarfélaginu Árborg
Hjóladagur
Í tilefni af göngu- og hjólamánuði í september var haldinn reiðhjóladagur mánudaginn 30. september í 3.-5. bekk.
Lesa Meira>>Samr.k.próf – 4. og 7. b/stæ
Dagsetningar samræmdra prófa í haustið 2011:
4. og 7. bekkur.
Föstudagurinn 23. september: Stærðfræði, kl. 9.00. Nemendur í 7. bekk mæta stundvíslega kl. 8.45 við bekkjarstofur (ekki seinna). Nemendur í 4. bekk mæta kl. 8.10.
4. bekkur – bréf Vallaskóla til nemenda og foreldra
7. bekkur – bréf Vallaskóla til nemenda og foreldra
www.namsmat.is – allt um samræmd könnunarpróf.
Til forráðamanna nemenda í 7. bekk
Stúlkur í 7. bekk munu fá HPV-bólusetningu gegn leghálskrabbameini 5. október 2011 hér í Vallaskóla.
Lesa Meira>>Samr.k.próf – 4. og 7. b./ísl
Dagsetningar samræmdra prófa í haustið 2011:
4. og 7. bekkur.
Fimmtudagurinn 22. september: Íslenska, kl. 9.00. Nemendur í 7. bekk mæta stundvíslega kl. 8.45 við bekkjarstofur (ekki seinna). Nemendur í 4. bekk mæta kl. 8.10.
4. bekkur – bréf Vallaskóla til foreldra og nemenda
7. bekkur – bréf Vallaskóla til nemenda og foreldra
www.namsmat.is – allt um samræmd könnunarpróf.