Fréttasafn

Fréttir frá Vallaskóla

Árshátíð unglingadeildar

27. nóvember 2014

Vetrarönn hefst.

19. nóvember 2014

Eldri borgarar í heimsókn

18. nóvember 2014

Föstudaginn 14. nóvember komu eldri borgarar í heimsókn til okkar þar sem dagur  íslenskrar tungu var handan við hornið. Heimsóttu þeir nemendur yngri deildar og lásu textabrot og smásögur við mikla gleði. Fleiri myndir á Facebook síðu Vallaskóla.

Foreldradagur

18. nóvember 2014

Nemendur mæti með foreldrum sínum í viðtal á tilsettum tíma.

Starfsdagur

17. nóvember 2014

Nemendur í fríi.

Vöfflusala hjá 10. bekk

17. nóvember 2014

Um leið og við minnum á foreldraviðtölin á morgun, viljum við vekja athyggli á fjáröflun 10. bekkinga.   Vöfflusala hjá 10. bekkum Vallaskóla á foreldradegi á morgun. Nemendur í 10. bekk verða með vöfflusölu og kökubasar í skólanum (í anddyrinu […]

Lesið í leikskólanum

14. nóvember 2014

Nemendur í 6. bekk heimsóttu leikskólann Álfheima í dag. Þar settust þeir niður með leikskólakrökkunum og lásu fyrir þá. Ekki var annað að sjá en almenn ánægja væri með þetta framtak. Í lokin fengu allir notið upplestur frá skáldi í […]

Annaskipti í nóvember

14. nóvember 2014

Annaskiptin eru framundan.   Mánudaginn 17. nóvember er starfsdagur í Vallaskóla. Nemendur eru þá í fríi. Opið á skólavistun fyrir þá sem eru skráðir.   Þriðjudaginn 18. nóvember er foreldradagur. Nemendur og forráðamenn þeirra koma þá til foreldraviðtals hjá umsjónarkennara. […]

Loftboltaáskorun

11. nóvember 2014

Kennarar skoruð á nemendur 10. bekkjar í svo köluðum loftbolta í síðasta tíma fyrir hádegi í dag. Ekki er að spyrja að því að kennarar rótburstuðu nemendur enda algjörir sérfræðingar í þessari íþrótt.   Fleiri myndir á Facebooksíðu Vallaskóla.

Skopparakringlukeppni

10. nóvember 2014

  Krakkarnir í 6. bekk hafa undanfarna smíðatíma verið að dunda sér við að búa til skopparakringlur. Í dag var afrakstur erfiðisins prófaður og haldin árleg skopparakringlukeppni. Almenn ánægja var með gæði skopparakringlanna og þegar upp var staðið voru allir […]

Dagur gegn einelti

7. nóvember 2014

Dagur gegn einelti var haldinn í Vallaskóla 8. nóvember. Í tilefni dagsins var ,,grænn dagur „ í skólanum. Allir áttu að mæta í einhverju grænu. Skóladagurinn byrjaði á allsherjar bekkjarfundi.  Umræðuefnið var  Samkennd og vinátta. Í lok skóladagsins  var söngstund […]

Töframenn í heimsókn

3. nóvember 2014

Einar Mikael og Eyrún Anna töframenn komu í heimsókn í Vallaskóla í dag og vorum með sýningu fyrir nemendur 1.-5.bekkjar. Margt var töfrað og margir kjálkar sigu af undrun.   Fleiri myndir á Facebook síðu skólans.