Fréttasafn
Fréttir frá Vallaskóla
Styðjum nemendur í 10. bekk
Minnum á kaffisölu og kökubasar nemenda í 10. bekk á foreldradaginn 20. nóvember nk. til styrktar skólaferðalagi þeirra í vor.
Dagur íslenskrar tungu
Mánudaginn 16.nóvember var dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur í Vallaskóla. Eldri borgarar komu í heimsókn og lásu fyrir nemendur 1. – 6. bekkjar. Síðan komu þau aftur til okkar dagana 17. – 18. nóv.og aðstoðuðu við lestrarátak skólans þar sem […]
Skoðuðu litla leikhúsið við Sigtún á Selfossi
Hópar úr leikrænni tjáningu fóru ásamt kennnara að skoða Litla leikhúsið við Sigtún á Selfossi. Þar fengu nemendur að skoða á bakvið tjöldin og fengu að upplifa og fræðast um starf leikhúsins. Við viljum þakka Friðjóni Ella fyrir frábærar móttökur […]
Annaskipti í nóvember
Fimmtudaginn 19. nóvember er starfsdagur í Vallaskóla. Nemendur eru þá í fríi. Föstudaginn 20. nóvember er foreldradagur. Nemendur og forráðamenn þeirra koma þá til foreldraviðtals hjá umsjónarkennara. Farið verður yfir námsmat, námslega stöðu og líðan. Mætt er skv. viðtalsyfirliti umsjónarkennara.
Af hverju þarf ég að lesa?
Haldið fimmtudaginn 12. nóvember 2015 kl. 17:30 í Ráðhúsi Ölfuss, Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn. Dagskrá 17:30 – Gylfi Jón Gylfason: Læsisátak stjórnvalda 17:50 – Margrét Tryggvadóttir: Skipta barnabækur máli? 18:10 – Gerður Kristný: „Bækur breyta heiminum“. 18:30 – Hlé
Matseðill mánaðarins – nóvember
Nýr matseðill fyrir nóvember er komin inná heimasíðuna en hann má sjá hérna.
Hundur í óskilum í einum af Bókabæjunum austanfjalls – Selfossi
Höfundamiðstöð RSÍ býður upp á metnaðarfulla bókmenntadagskrá fyrir grunnskóla landsins í ár. Það var hljómsveitin Hundar í óskilum (Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson) sem buðu að þessu sinni nemendum í 7.-10. bekk í Vallaskóla upp á Halldór Laxness á hundavaði.
Bangsadagurinn
Alþjóðlegi bangsadagurinn var haldinn hátíðlegur í Vallaskóla þriðjudaginn 27.október. Nemendur yngrideildar mættu í náttfötum í skólann og skóladeginum lauk með bangsadiskói í íþróttasal skólans. Þar sem nemendur dönsuðu dansa sem þau hafa lært undir stjórn íþróttakennara.
Áhugaverður fyrirlestur um einhverfu og skipulagða kennslu
Svanhildur Svavarsdóttir, talmeinafræðingur, sérkennari og boðskiptafræðingur, var með afar áhugaverðan fyrirlestur um einhverfu og skipulagða kennslu í Sunnulækjarskóla miðvikudaginn 21. október 2015. Í fyrirlestrinum lagði hún m.a. áherslu á mikilvægi þess að nota sjónrænt skipulag í öllum aðstæðum.
