Öskudagur og vetrarfrí framundan

Komið þið sæl og blessuð.

Minnum á að það er skertur skóladagur á morgun, öskudag miðvikudaginn 17.2.2021. Skóladeginum lýkur þá kl. 12:40.
Þetta hefur fyrst og fremst áhrif á kennslu á miðstigi og efsta stigi.

Eins minnum við á vetrarfrí eftir næstu helgi, þ.e. mánudaginn 22. febrúar og þriðjudaginn 23. febrúar.

Með von um ánægjulegan öskudag.

Kær kveðja,
Starfsfólk Vallaskóla.