Ólympíuhlaup ÍSÍ í Vallaskóla

Ólympíuhlaup ÍSÍ hefur nú tekið við af Norræna skólahlaupinu sem hefur verið hluti af skólaíþróttum síðan 1984. Með Ólympíuhlaupi ÍSÍ er leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Hlaupið er með sama sniði og geta nemendur valið á milli vegalengdanna 2,5 km, 5 og 10 km.

Nemendur Vallaskóla tóku þátt í Ólympíuhlaupinu þriðjudaginn. 8. september í fínasta veðri. Stóðu nemendur sig með mikilli prýði og hver fór á sínum hraða.

Hér sjáum við vaska þriðju bekkinga á sinni leið. 

Vallaskóli 2020 (MS)
Vallaskóli 2020 (MS)