Í síðustu viku fyrir jólafrí buðu nemendur í 6. og 7. bekk foreldrum sínum á leiksýningu í skólanum. Leikritið hafa þau verið að æfa í leikslistatímum hjá Kristbjörgu leiklistakennara. Leikritið byggðist á Jólasveinavísum Jóhannesar úr Kötlum og er óhætt að segja að allir nemendur hafi staðið sig frábærlega og var sýningin góð skemmtun.