Gestir frá Danmörku

 

 

Nemendur í 7. MIM og 7. MK hafa verið í vinabekkjarsamstarfi við jafnaldra sína í Danmörku í nokkur ár, nánar tiltekið við nemendur í MC Holmsskole – Morsøkommune á Jótlandi. 

Þetta samstarf tengist Nordplusverkefni en saman hafa nemendur okkar og nemendurnir í Danmörku unnið að þemaverkefni, sem gengur út á að búa til ímyndað samfélag á Surtsey. Samhliða þessu hafa dönsku nemendurnir fræðst um jarðfræði Íslands, s.s. eldfjalla- og jarðskjálftavirkni. Nemendur í Vallaskóla hafa svo þjálfast heilmikið í dönsku.

Nú stendur til að nemendurnir frá MC Holmsskole komi í heimsókn í Vallaskóla, einmitt til að bera saman bækur og hitta íslenska pennavini sína. Ekki er laust við að mikil spenna ríki í herbúðum 7. MIM og 7. MK. 

Heimsóknin stendur frá 9. -14. september og er búið að undirbúa töluverða dagskrá. Utan þess að vera í Vallaskóla og á Selfossi þá munu krakkarnir fara í Bláa lónið, þau fara Gullhringinn, í réttir, í ratleik í Reykjavík ofl., ofl.

Það er Linda Dögg Sveinsdóttir dönskukennari í Vallaskóla sem heldur utan um þetta samstarfsverkefni af miklum myndarskap, og fær einnig góða hjálp frá foreldrum nemenda í 7. bekk. Með nemendunum frá MC Holmsskole koma þrír kennarar og skólastjórinn einnig.

Vonir standa til að samstarfið milli Vallaskóla og MC Holmsskole haldi áfram og að fleiri nemendur geti notið þess að vera í vinabekkjarsamstarfi á milli landa. Ljóst er að slíkt samstarf skilur eftir dýrmætar minningar hjá nemendum að ekki sé talað um það nám sem fram fer og ræktun vinasambands þjóða á milli.

Heimasíða MC Holmsskole