Skólasetning
Skólastarf í Vallaskóla hófst með formlegum hætti í dag. Að vanda bauð skólastjóri nemendur velkomna til starfa og setti svo skóla formlega með því að hringja hann inn með gamalli skólabjöllu.
Skólastarf í Vallaskóla hófst með formlegum hætti í dag. Að vanda bauð skólastjóri nemendur velkomna til starfa og setti svo skóla formlega með því að hringja hann inn með gamalli skólabjöllu.
Á vordögum var starf skólans metið. Nú hefur Násmatsstofnun skilað af sér matsskýrslu. Áhugasamir geta kynnt sér hana með því að smella á tengilinn Ytra mat grunnskóla í Handraðanum hér vinstra megin á síðunni.
Ytra mat grunnskóla Read More »
Skólasetning fer fram í íþróttahúsi Vallaskóla föstudaginn 22. ágúst. Nemendur í 2.−5. bekk, f. 2004−2007, mæti kl. 10:00. Nemendur í 6.−10. bekk, f. 1999−2003, mæti kl. 11:00. Nemendur í 1. bekk (f. 2008) og forráðamenn þeirra eru boðaðir sérstaklega í viðtöl eins og þegar hefur verið tilkynnt. Foreldrakynningar fyrir foreldra nemenda í eldri deild (6.
Skólasetning föstudaginn 22. ágúst Read More »
,,Já, það fer ekki á milli mála að það vaknar allt á vorin, sem lífsanda dregur. Ekki síst þegar vor- og sumarkoman er jafn mild og mjúkhent eins og við höfum átt að fagna hér á Suðurlandi að þessu sinni.“ Þannig komst Guðbjartur Ólason skólastjóri Vallaskóla að orði við upphaf útskriftar nemenda í 10. bekk,
Skólaslit í 10. bekk 2013-2014 Read More »
Jafnréttisáætlun Vallaskóla hefur nú verið birt á heimasíðunni og er aðgengileg undir ,,Sýn, stefna og leiðir“.
Jafnréttisáætlun Vallaskóla Read More »
Á vordögum fóru nemendur í 3. bekk í heimsókn í MS á Selfossi og fengu að kynnast því starfi sem fer þar fram. Nemendur fengu að útbúa smjör sem þau tóku með sér í skólann og gæddu sér á að ferð lokinni.
Heimsókn í mjólkurbúið Read More »
Fimmtudaginn 22. maí 2014 lögðu nemendur í 7. bekk Vallaskóla af stað í ferðalag og var förinni heitið í Þórsmörk. Farið var í tveimur rútum frá Guðmundi Tyrfingssyni.
Þórsmörk – ferðasaga Read More »
Hér gefur að líta glæsilegt handverk frá nemendum í 6. bekk, tvær lopapeysur sem kláruðust núna í skólalok. Önnur peysan er prjónuð af stúlku en það var drengur sem prjónaði hina.
Prjónaskapur í 6. bekk Read More »
Nemendur í 8. bekk fóru í vettvangsferð niður á strönd, heimsóttu fjöruna og Menningarverstöðina á Stokkseyri en komu einnig við á Eyrarbakka og skoðuðu m.a. sjóminjasafnið. Komið var við á Gamla Hrauni þar sem nemendur borðuðu nestið sitt og kíktu á lömb og hænur. Frábær dagur í frábæru veðri.