Á döfinni

Árshátíð unglingastigs

ÁRSHÁTÍÐ UNGLINGASTIGS 2012-2013 Árshátíð í 8., 9. og 10. bekk Vallaskóla verður haldin í íþróttahúsi Vallaskóla, fimmtudaginn 29. nóvember 2012. Kvöldið hefst á hátíðarkvöldverði fyrir 10. bekk. Húsið opnar kl. 18.00 en borðhald hefst kl. 18:30. Boðið verður upp á tveggja rétta kvöldverð. Matseðill fyrir 10. bekk: Lambalæri með röste kartöflum, steiktu grænmeti og villisósu. …

Árshátíð unglingastigs Lesa meira »

Hrókurinn – skákmót Vallaskóla

Í dag verður haldið meistaramót Vallaskóla í skák, betur þekkt sem Hrókurinn. Staður: Vallaskóli aðalanddyrið á Sólvöllum Tími: Mánudagurinn 26. nóvember kl 13-14:30 Flokkar: 1.-6. bekkur og 7.-10. bekkur Allir nemendur Vallaskóla mega taka þátt! Verðlaunapeningar og farandgripur í verðlaun fyrir 3 efstu sætin í báðum flokkum.

Sjómaður á ferð

Sjóminjasafnið á Eyrarbakka býður skólum upp á safnfræðsludagskrá fyrir 3. bekk. Nemendur í 3. bekk Vallaskóla munu fá heimsókn safnvarðar í Byggðasafni Árnesinga sem kemur með sjóminjar í skólastofuna og fræðir nemendur um sjómannslíf fyrrum. Heimsóknin verður miðvikudaginn 21. nóvember. Dagskráin fjallar um ferðalög, líf og störf vermanna sem sóttu sjóinn á áraskipum á 19. …

Sjómaður á ferð Lesa meira »

Dagur íslenskrar tungu

Dagskrá: 1.-5. bekkur: Kaffilestur eldri borgara. 6. bekkur: Heimsókn í leikskóla. 7. bekkur: Setning Stóru upplestrarkeppninar á sal. 8.-10. bekkur: Örsöguvinna og upplestur á sal.