thorvaldur

Setning Vinnuskólans

VINNUSKÓLINN Í ÁRBORG 2014 Setning vinnuskólans fer fram fimmtudaginn 5. júní 2014 kl 20:00 – 21:00 í Fjallasal Sunnulækjarskóla Kæri nemandi Vinnuskólans Þér er boðið að koma ásamt foreldra/forráðamanni við setningu Vinnuskólans. Setningin fer fram í Sunnulækjaskóla fimmtudaginn 6.júní og byrjar kl 20:00. Fyrsti vinnudagur er þriðjudaginn 10. júni 2014 og eiga krakkar á Selfossi …

Setning Vinnuskólans Lesa meira »

Vorhátíðardagur

Í dag, miðvikudaginn 4. júní, er vorhátíðardagur í Vallaskóla. Sjá nánar í fréttabréfum okkar hér. Athugið foreldar að þið eruð hjartanlega velkomin að koma og borða með okkur grillmat (sjá dagskrá).

Prjónaskapur í 6. bekk

Hér gefur að líta glæsilegt handverk frá nemendum í 6. bekk, tvær lopapeysur sem kláruðust núna í skólalok. Önnur peysan er prjónuð af stúlku en það var drengur sem prjónaði hina.

Vordagar

Nemendur í 8. bekk fóru í vettvangsferð niður á strönd, heimsóttu fjöruna og Menningarverstöðina á Stokkseyri en komu einnig við á Eyrarbakka og skoðuðu m.a. sjóminjasafnið. Komið var við á Gamla Hrauni þar sem nemendur borðuðu nestið sitt og kíktu á lömb og hænur. Frábær dagur í frábæru veðri.

Hjóladagur 1. – 6. bekkur

Hjóladagur 30. maí 1.-6. bekkur. Lögreglan kemur í heimsókn og yfirfer hjól og búnað. Boðið verður upp á hjólabrautir á skólalóð. Góða skemmtun! 4. bekkur = kl. 8:30-9:30 1. bekkur = kl. 9:50-10:30 2. bekkur = kl. 10:30-11:10 3. bekkur = kl. 11:20-12:10 6. bekkur = kl. 12:10-13:00 5. bekkur = kl. 13:00-13:40