thorvaldur

Litlu jólin – eldri deild

Kl: 15.30 Austurrýmið á Sólvöllum – 5. og 6. bekkur. Lýkur kl. 16.30.

Kl: 17.00  Austurrýmið á Sólvöllum – 7. bekkur. Lýkur kl. 18.00.

Kl: 18.00  Austurrýmið á Sólvöllum – 8.-10. bekkur, jólakvöldvaka. Lýkur kl. 20.30.

Verðlaunaafhending á Bessastöðum

Halldóra Íris Magnúsdóttir í 9. SHJ tók þátt í netratleik í tengslum við forvarnadaginn sem haldinn var 3. nóvember sl. Hún datt heldur betur í lukkupottinn þegar hún var dregin úr potti þátttakenda og vann Ipod Touch. Fór verðlaunaafhendingin fram á Bessastöðum 5. desember.

Þorgrímur Þráinsson

Þorgrímur Þráinsson kom í heimsókn og las upp úr tveimur bókum sínum fyrir nemendur í 3.-7. bekk. Nemendur kunnu vel að meta lesturinn og var Þorgrímur klappaður upp í lokin.

MCSveppz

MCSveppz hélt uppi föstudagsfjöri í anddyrinu á Sólvöllum sl. föstudag. Plötusnúðurinn heitir Sverrir Victorsson og honum til aðstoðar er Njáll Laugdal.

Eldvarnavikan

Nú líður að jólum og áramótum og því gott að huga að eldvörnum. Hér má sjá myndir úr heimsókn 3. bekkjar á slökkviliðsstöðina í tilefni af Eldvarnarvikunni 19.-26. nóvember.

Hvað ef?

Íslandsbanki bauð öllum nemendum í 9. og 10. bekk í Árborg á forvarnasýninguna ,,Hvað ef?“. Sýningin var sýnd í Kassanum – Þjóðleikhúsinu.