Hrekkjavaka
Skólinn okkar hefur verið skreyttur í hrekkjuvökustíl. Nemendur hafa verið duglegir að skella upp allskonar myndum og skreytingum sem tengjast deginum. Á morgun verður uppbrot fyrir nemendur í tengslum við þessa skemmtilegur hefð.
Skólinn okkar hefur verið skreyttur í hrekkjuvökustíl. Nemendur hafa verið duglegir að skella upp allskonar myndum og skreytingum sem tengjast deginum. Á morgun verður uppbrot fyrir nemendur í tengslum við þessa skemmtilegur hefð.
Foreldrafélag Vallaskóla afhenti börnum í 1. bekk endurskinsvesti með nöfnum þeirra á. Lögreglumenn frá Samfélagslöggu Suðurlands komu í skólann þegar nemendur fengu vestin afhend og fóru yfir hversu mikilvægt það er að sjást vel í umferðinni.
Nemendur í 1. bekk fá afhent endurskinsvesti Read More »
Næstkomandi miðvikudag, 23. október verður bleikur dagur í Vallaskóla eins og alls staðar annar staðar á landinu.
Slæmi hárdagurinn vakti mikla gleði í dag. Nemendur sýndu mikinn frumleika við hárgreiðslur. Myndasafnið sem fylgir sýnir nokkur dæmi.
Á morgun miðvikudaginn 16. október ætlum við nemendur og starfsfólk að bregða á leik og eiga slæman hárdag.
Þriðji árgangur fór í fjöruferð í Stokkseyrarfjöru á vegum tengla þriðjudaginn 8. október. Í skólastofunni erum við að vinna þemaverkefni um hafið og var ferðin skipulögð með það í huga. Ferðin heppnaðist vel og þátttakan var nokkuð góð.
Ferð í Stokkseyrarfjöru hjá 3. árgangi Read More »
Aðalfundur foreldrafélags Vallaskóla verður mánudaginn 30. sept. kl: 20:00 í stofu 19. Hægt verður að ganga inn innganginn sem snýr að Engjaveg. Vonumst við til að sjá sem flesta foreldra koma og sýna foreldrafélaginu og skólastarfi samstöðu og áhuga. Dagskrá aðalfundar Foreldrafélags Vallaskóla: 1. Ávarp formanns 2. Gjaldkeri leggur fram ársreikning. 3. Kosið í stjórn
Aðalfundur foreldrafélags Vallaskóla Read More »