Matseðill í nóvember
Matseðill í nóvember Read More »
Kæru foreldrar og forráðamenn. Fimmtudaginn næstkomandi verður haldinn samtalsfundur um hagsmuni barna í 5. – 10. árgöngum í sveitarfélaginu Árborg. Fundurinn fer fram á Sviðinu í miðbæ Selfoss. Nánar í meðfylgjandi auglýsingu. Páll Sveinsson, skólastjóri. Dear parents and guardians, This coming Thursday, a discussion meeting will be held about the interests of children in grades
Í krafti okkar allra Read More »
Minnum á að 10. árgangur verður með vöflusölu á foreldradaginn 4. nóvember. Verða seldar gegn hóflegu gjaldi auk kaffis. Hægt er að borga í peningum eða millifæra inna á reikning ferðanefndar.
Fjáröflun 10. árgangs – vöflusala Read More »
Kæru fjölskyldur nemenda Vallaskóla Framundan er starfsdagur og foreldradagur 3. og 4. nóvember. Á báðum þessum dögum verða foreldraviðtöl. Tímapantanir fara eingöngu fram í Mentor (sjá nánari upplýsingar frá umsjónarkennurum). Opnað hefur verið fyrir viðtalspantanir í Mentor. Lengd hvers viðtals er áætluð 10-15 mínútur (nema annað hafi verið ákveðið). Við hvetjum ykkur að ræða einnig við aðra kennara en
Starfs- og foreldradagar framundan Read More »
Skólabragur er námsfag í unglingadeild þar sem meðal annars er unnið með lykilhæfni Aðalnámskrár grunnskóla. Um daginn var unnið með hópefli í 10. bekk og þá náðist þessi yndislega mynd. Hér má sjá nemendur fylgjast andaktugir með innleggi kennara sinna.
Stjórn nemendafélags Vallaskóla NEVA stendur fyrir þemaviku á unglingastigi þessa viku. Sjá auglýsingu.
Búningaþemavika í unglingadeild Read More »
Við óskum nemendum okkar og forráðamönnum þeirra notalegs haustleyfis. Látum fylgja með góðri kveðju okkar nokkrar myndir frá Múrtunnuslætti sem nemendur 5., 6. og 7. árgangs fengu að spreyta sig á dag. Um er að ræða hluta af verkefninu „Tónlist fyrir alla“. Nemendur skemmtu sér vel við bumbusláttinn og allir fengu eitthvað fyrir sinn snúð.
Kæru foreldrar og forráðamenn við Vallaskóla. Dagana 23. og 24. október er haustfrí í grunnskólum Árborgar, líkt og kemur fram á skóladagatali. Starfsmenn Vallskóla óska nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegs og góðs haustfrís. Kennsla hefst á ný mánudaginn 27. október samkvæmt stundaskrá. Starfsmenn Vallaskóla
Við finnum fyrir því að daginn er farið stytta. Þeim tíma fylgir að við þurfum að dusta rykið af enduskinsmerkjunum okkar. Öll viljum við sjást í myrkrinu. Foreldrafélag Vallaskóla er með puttann á púlsinum hvað þetta varðar. Á dögunum fóru fulltrúar foreldrafélagsins þær Bjarnheiður Böðvarsdóttir og Júlíana Gústafsdóttir og afhentu börnum í 1.árgangi endurskinsvesti. Börnin
Foreldrafélagið gefur 1. árgangi endurskinsvesti Read More »
Nemendur í 5. árgangi tóku þátt í hönnunarsmiðju í dag. Hönnunarsmiðjunni er haldið úti af Hönnunarsafni Íslands og er Auður Ösp í forsvari fyrir þessu skemmtilega verkefni. Lagt er til efni og tæki og tól til hönnunar af hendi Hönnunarsafnsins. Nemendur lögðu sig vel fram enda var afraksturinn eftir því. Myndirnar tala sínu máli. Við
Hönnunarsmiðja hjá 5. árgangi Read More »