Tími endurskinsmerkjanna er runninn upp
Tími endurskinsmerkjanna er runninn upp Read More »
Aðalfundur foreldrafélags Vallaskóla verður mánudaginn 30. sept. kl: 20:00 í stofu 19. Hægt verður að ganga inn innganginn sem snýr að Engjaveg. Vonumst við til að sjá sem flesta foreldra koma og sýna foreldrafélaginu og skólastarfi samstöðu og áhuga. Dagskrá aðalfundar Foreldrafélags Vallaskóla: 1. Ávarp formanns 2. Gjaldkeri leggur fram ársreikning. 3. Kosið í stjórn
Aðalfundur foreldrafélags Vallaskóla Read More »
Haustþing Kennarafélags Suðurland fer fram dagana 26. til 27. september. Af þeim sökum lýkur skólastarfi kl. 13:00 fimmtudaginn 26. september og ekkert skólastarf verður föstudaginn 27. september.
Haustþing Kennarafélags Suðurlands Read More »
Hægt er að kynna sér menntastefnu Sveitarfélagsins Áborgar til ársins 2030 á vef þess. Menntastefnan byggir á þremur leiðarljósum sem eiga að einkenna allt starf með börnum og unglingum í Árborg. Leiðarljósin: Farsæld í fyrirrúmi, Fjölbreytileiki og Faglegt lærdómssamfélag eru lykillinn að því gæða starfi sem einkennir skóla- og frístundastarf í Árborg. Hér má lesa menntastefnuna í heild sinni: https://www.arborg.is/ibuar/skolar-og-daggaesla/menntastefna-til-2030/
Menntastefna Sveitarfélagsins Árborgar til 2030 Read More »
Kæru fjölskyldur nemenda Vallaskóla. Þriðjudaginn 17. september nk. er skertur dagur samkvæmt skóladagatali. Það þýðir að kl. 10:30 lýkur kennslu og nemendur í 5.-10. árgangi sendir heim. Foreldrar eru því beðnir um að gera ráðstafanir vegna þessa. Boðið verður upp á gæslu fyrir nemendur í 1.- 4. árgangi. Sú gæsla er frá kl. 10:30 þar
Skertur dagur þriðjudaginn 17. september Read More »
Undanfarin ár hafa nemendur í listavali verið iðin við að skreyta veggi skólans okkar. Hér gefur að líta nokkrar af þessum fínu myndum.
Listin á veggjunum Read More »
Sunnudaginn 8. september var alþjóðadagur læsis. Af því tilefni hefur Félag læsisfræðinga á Íslandi gefið út leiðbeiningar fyrir forráðamenn til að styðja við heimalestur barna sinna.
Alþjóðadagur læsis Read More »
Vakinn er athygli á bréfi sem Fjölskyldusvið Árborgar hefur sent frá sér. Þar er fjallað um þá ofbeldisöldu sem farið hefur um samfélagið og viðbrögð við henni. Skorað er á foreldra/forráðamenn að kynna sér efni bréfsins vel.
Bréf frá Fjölskyldusviði Árborgar vegna ofbeldisöldu Read More »
Ólympiuhlaup ÍSÍ fór fram í gær þriðjudaginn 3. september. Allir nemendur skólans höfðu tækifæri til að taka þátt í hlaupinu. Boðið var upp á 1,25 km hring um Gesthúsasvæðið og hófst hlaupið við Tíbrá. Vegalengdir sem boðið var upp á hlaupa voru 2,5, 5 og 10 km. Skemmst er frá því segja að nemendur voru