Inga Dóra Ragnarsdóttir

Útinám hjá 3. árgangi

Þriðji árgangur í Vallaskóla er búinn að vera í fjölbreyttu námi þessa vikuna með það að markmiði að nemendur fái kynningu á því hvers vegna sumir hlutir fljóta en aðrir ekki, að börnin fái tækifæri til að læra í gegnum verklegar æfingar.

Skólahlaup ÍSÍ

Tilkynning frá íþróttakennurum: Á fimmtudaginn næsta 8.september er fyrirhugað skólahlaup hjá okkur í Vallaskóla. Hlaupið er á Gesthúsa og íþróttavallasvæðinu. Vegalengd er 2,5 km en frjálst er að fara lengra 5 km, 7,5 km eða 10 km. Þennan dag verður ekki sundkennsla og íþróttakennsla. Gott er að koma klædd eftir veðri og í viðeigandi skóbúnaði.