Samfélagslögreglan heimsótti unglingadeild í dag. Hún fjallaði til dæmis um samfélagsmiðla og umgengni við þá. Einnig var rætt um umgengni við rafhjól og skellinöðrur og það regluverk sem gildir um þau. Margt annað var fjallað um. Þá svaraði lögreglan spurningum úr sal og var þar margt athyglisvert sem kom fram. Þökkum við lögreglunni fyrir komuna.




