Dagana 19 – 21. október unnu nemendur í 5. og 6. árgangi saman í þemavinnu og var þemað Barnasáttmáli sameinuðu þjóðanna. Unnið var með þrjár greinar sáttmálans í hverri kennslustofu. Nemendum var blandað þvert á árganga í sex hópa og gekk sú vinna vonum framar. Nemendur höfðu gaman af því að kynnast betur og vinna saman. Allir stóðu sig með mikilli prýði. Í dag endaði þessi vinna með gryfjuboltakeppni í íþróttasal. Afrakstur þemavinnunnar var hengdur upp á vegg skólans fyrir aðra að skoða. Meðfylgjandi eru myndir frá þessari vinnu.






















































