Jákvæður agi

 

Í Vallaskóla er verið að innleiða uppeldisstefnuna Jákvæður agi (e. Positive Discipline) sem byggir á sjálfsstjórnunarkenningum og felur í sér að horft er á orsakir hegðunar fremur en t.d. að reyna að breyta hegðuninni með umbun og refsingu eins og lengi hefur tíðkast.

Jákvæður agi kennir félagsfærni og lífsleikni

  • Meginreglur Jákvæðs aga hjálpa til við að byggja samband væntumþykju og virðingar
    og þær auðvelda að finna lausnir til frambúðar.
  • Jákvæður agi byggir á kennslu, skilningi, hvatningu og samskiptum

Börnin þróa með sér ábyrgðarkennd og þroska félagsfærni sína í gegnum lífsleikni í andrúmslofti virðingar, góðvildar og festu. Jákvæður agi byggir á því að börn þroski með sér og efli færni í að finna lausnir og setja sér mörk í samskiptum.
Teymi innan skólans heldur utan um innleiðinguna sem hefst í 1-5 árgangi og vex síðan með nemendum upp grunnskólann. Með því gefst færi á að leggja sterkan grunn að félags- og tilfinningafærni nemenda sem fylgt er eftir alla skólagönguna í Vallaskóla.

 

 

Sjálfsstjórnarkenningar

Jákvæður agi er uppeldisstefna sem byggir á sjálfsstjórnunarkenningum. Höfundar eru Alfred Adler, Rudolf Dreikurs, William Glasser, Jane Nelsen o.fl.

Það sem skýrir hegðun:

  • fólk er knúið áfram af innri þörfum - að tilheyra

Við höfum mest áhrif:

  • þegar við höfum samskipti sem byggjast á gagnkvæmri virðingu

Áhrifamestu verkfærin eru:

  • samhygð, skilningur, þrautalausnir, góðvild og festa

Virðing er:

  • gagnkvæm, allir eiga skilið virðingu í samskiptum

Viðbrögð  við óæskilegri hegðun:

  • að leita orsaka, finna lausnir og fylgja ákvörðunum eftir

Viðbrögð við hættulegri hegðun:

  • skýr eftirfylgd og rökréttar afleiðingar

Nám fer fram þegar:

  • barn upplifir tilgang, sjálfsstjórn og þátttöku

 

 

Mistök eru tækifæri til að læra

Mikilvægt er að kenna börnum að losna við sektarkennd, skömm og ásakanir eftir að hafa gert mistök. Að geta beðist afsökunar á mistökum og fundið út í sameiningu hvernig hægt er að læra af þeim hjálpar börnum að bæta sig í samskiptum.

 

Heildarmyndin - Hús Jákvæðs aga

 

Gróf kennsluáætlun, yfirlit yfir þá þætti sem teknir eru í hverjum árgangi

 

Nánari upplýsingar um Jákvæðan aga má finna á heimasíðu Jákvæðs aga.

Þetta skjal á PDF-formati.