Það gleður okkur mjög að nemendur hafa dregið reiðhjólin sín fram nú þegar veturinn er að sleppa af okkur hendinni. Það er nokkur atriði sem við viljum skerpa á varðandi reiðhjólin:
- Notkun reiðhjóla, hjólabretta, línuskauta og vélhjóla er ekki leyfð á skólalóðinni á skólatíma, skv. 6. gr. skólareglna.
- Hjálma á að nota á reiðhjólum fram til 16 ára aldurs skv. 79. grein Umferðarlaga.
- Eins bendum við á að hyggilegt er að læsa hjólunum. Lausleg könnun leiddi í ljós að aðeins 20% hjóla voru læst.
- Á vef Landsbjargar er góð fræðsla um hjólanotkun sem ber yfirskriftina Hjól og hjálmar.
Við óskum öllum gleðilegs hjólasumars og gleðjumst yfir þessum frábæra fararmáta.

