ZELSÍUZ
Sveitarfélagið Árborg starfrækir félagsmiðstöðina Zelsíuz sem hefur verið starfrækt síðan árið 1980.
Í Zelsíuz er boðið upp á uppbyggilegt frístundasstarf fyrir 10 – 16 ára börn og unglinga í frítíma þeirra. Áhersla er lögð á að ná til þeirra barna og unglinga sem þarfnast félagslegs stuðnings og að bjóða upp á fjölbreytileg viðfangsefni. Unnið er í klúbbum, sértæku hópastarfi, opnu starfi og loks stendur félagsmiðstöðin fyrir stórum sem smáum viðburðum.
Hlutverk félagsmiðstöðvarinnar er tvíþætt. Annars vegar að bjóða börnum og unglingum á aldrinum 10 -16 ára upp á frístundastarf sem hefur forvarnar-, uppeldis og menntunargildi og tekur mið af aldri þeirra og þroska. Hins vegar að bjóða upp á aðstöðu til afþreyingar og samveru með jafnöldrum í öruggu umhverfi undir handleiðslu starfsmanna. Áhersla er lögð á að virkja börn og unglinga til virkrar þátttöku og framkvæmda í starfinu, einkum þau sem þurfa sérstaka hvatningu og stuðning vegna félagslegra aðstæðna.
Markmið félagsmiðstöðvarinnar er að ná til allra nemenda á mið- og unglingastigi grunnskólanna og gefa þeim tækifæri á að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli. Leitast er við að mæta hverjum einstakling á hans forsendum og veita honum tækifæri til að njóta sín í félagsstarfinu. Félagsmiðstöðin er vettvangur þar sem börn og unglingar fá tækifæri til að sýna frumkvæði, axla ábyrgð og sýna sjálfstæði í vinnubrögðum. Starfið einkennist af gagnkvæmri virðingu, jákvæðum samskiptum og ungmennalýðræði.
Félagsmiðstöðin Zelsíuz heldur úti fjölbreyttri dagskrá í samstarfi við Z-ráðið sem tekur mið af áhugamálum unglinganna hverju sinni. Félagsmiðstöðin kappkostar að stuðla að jákvæðum og þroskandi samskiptum meðal barna og unglinga og örva félagsþroska þeirra og lýðræðisvitund. Félagsmiðstöðin Zelsíuz vinnur einnig markvisst að forvarnarmálum og valdeflingu en starfsmenn hennar notast við aðferðafræði reynslunáms
Starfseminni er skipt upp í starf fyrir miðstigið (5.-7.bekkur) og starf fyrir unglingastigið (8.-10.bekkur).
Miðstig (5.-7.bekkur)
Mánudagur | 17:00-18:30 í Sunnulækjarskóla |
Þriðjudagur | 17:00-18:30 á Stokkseyri |
Miðvikudagur | 17:00-18:30 í Vallaskóla |
Unglingastig (8.-10.bekkur) – Zelsíuz
Mánudagur | 19:30-22:00 |
Þriðjudagur | 19:30-22:00 (Á Stokkseyri) |
Miðvikudagur | 19:30-22:00 |
Fimmtudagur | Lokað |
Föstudagur | 19:30-22:00 |
Lokað er um helgar nema ef um sérauglýsta viðburði er að ræða.
OPNUNARVIKA
Við byrjum starfið á svokölluðum árgangakvöldum. Það er fyrir unglingastigið og hver árgangur fyrir sig kemur til okkar í Pizzuveislu og almennt stuð!
Dagskráin fyrstu vikuna verður svona:
Þriðjudagurinn 1. Sept: 10. Bekkur – Sunnó, Valló og Bes
Miðvikudagurinn 2. Sept: 9. Bekkur – Sunnó, Valló og Bes
Föstudagurinn 4. Sept: 8. Bekkur – Sunnó, Valló og Bes
— Opnunartími: 19:30-22:00
Miðdeildarstarfið byrjar aðeins seinna og verður auglýst þegar þar að kemur.
Ef börnin ykkar hafa áhuga á að koma í félagsmiðstöðina en treysta sér ekki í það af einhverjum ástæðum, hvort sem það er feimni, félagsleg vandamál eða annað, þá endilega hafið samband. Við vinnum síðan saman að því að finna út hvernig við getum gert hluta sem þægilegasta fyrir börnin. Við getum til dæmis tekið sérstaklega á móti þeim, boðið þeim til okkar utan opnunartíma til að leyfa þeim að kynnast félagsmiðstöðinni í rólegheitum eða fundið út það sem hentar hverjum og einum.
Bestu kveðjur
Dagbjört
Forstöðumaður Zelsíuz
S: 480-1951
Tölvupóstur: dagbjort.hardar@arborg.is
Félagsmiðstöðin Zelsíuz
Austurvegur 2b – 800 Selfoss
Vefsíða: https://www.facebook.com/felagsmidstodinzelsiuz/