Vorhátíð Vallaskóla var haldin í blíðskaparveðri í dag, 8. júní.
Íþróttakennarar skipulögðu stöðvar sem staðsettar voru um víðan völl, bæði úti og inni.
Veðrið lék heldur betur við okkur og heppnaðist dagurinn vel.
Nemendur og starfsfólk voru loks leyst út með pylsum og safa.
Unglingastig kynnti, á meðan á öllu þessu stóð, afrakstur sinn í Vallalandi, þemadögum á unglingastigi.