2. árgangur skellti sér í vettvangsverð á lögreglustöðina og í Björgunarmiðstöðina.
Heldur betur spennandi ferð þar sem móttökurnar voru góðar og fengu nemendur að sjá ýmislegt skemmtilegt og spennandi eins og fangaklefana, sitja í lögreglubílnum og heyra hávaðann í sírenunum. Þau fengu að fara upp í stóra slökkviliðsbílinn, skoða sjúkrabílinn, sitja í torfærubílnum og sprauta úr brunaslöngunni. Mikið ævintýri og allir kátir.